17.10.07

... langt síðan síðast...

... já hef ætlað mér að blogga fyrr en tja var á fullu í prófalestri fyrir SÍÐASTA prófið mitt í læknisfræði fyrir embættisprófin í vor!! Sumir grínast með að nú sé maður orðinn fræðilegur læknir, aðeins vantar upp á verknám og svo auðvitað embættisprófin. Ég á hins vegar eftir að fínpússa verkefnið mitt og verja það... eins og nokkrir aðrir á minni önn. Stend í því þessa dagana enda í tveggja vikna langþráðu haustfríi áður en ég fer í mánaðarverknám á deild sem ég er rosalega spennt fyrir, endokrinologi- deildinni (hormóna-og efnaskipta):D Síðan tekur við pendl til Kolding í desember þar sem ég verð á fæðinga- og kvennsjúkdómadeildinni á Kolding Sygehus. Spændende enda allt fyrsta val sem ég og vinkona mín Vibeke fengum :D



Við Jói erum þó að fara í smá helgarfríi... tökum lestina í fyrramálið til "heimaborgar" Jóa, Flensburg þar sem við höfum leigt Audi sportback fram á sunnudag. Þaðan förum við á B&B Truelove í Amsterdam, skondið nafn en eitt á fáu gistiheimilinum sem ég fann á netinu þar sem ekki stóð stórum stöfum SMOKING ALLOWED eða ABOVE OUR COFFEESHOP... Verðum í Amsterdam fram á föstudagskvöld eða laugardagsmorgun og förum þaðan að heimsækja þýska vinkonu mína, Jönnu, sem er að læra barnalækninn í heimabæ sínum Muenster er liggur rétt við landamærin upp að Hollalandi. Við kynntumst þegar ég var ungur og vitlaus skiptinemi í verknámi á 6. önn á kirurgiunni á LSH. Hún var hins vegar á kandídatsárinu, þannig að við gerðum díll, hún reddaði mér með faglega dótið og ég sýndi henni landið og túlkaði fyrir hana orð eins og gallkögun, ósæðargúlp og gauklabólgu!







Annars hefur lífið ekki einungis verið próflestur og verkefnaskil frá því við komum hingað. Stóðum í flutningum, týndum saman búslóð mína úr geymslum vina hérna í Odense daginn eftir að við komum. Jói ók um eins og hershöfðingi á flutningabílnum er við leigðum en að aka hér um er ekki auðvelt út af öllu hjólreiðamönnnunum sem eiga ALLTAF réttinn. Síðan tók við bið yfir daginn eftir restinni, leystum hvort annað af á vöktum þar sem siðurinn hérna er að segja: "já við komum eitthvern tímann eftir 9:00 og fyrir 21:00 á morgun". Þykir greinilega gott að þeir geta tilgreint dagsetningu og vikudag en ekki meir! Fengum flotta sófann okkar sem er btw fínasti svefnsófi ef eitthver vill kíkja hingað í heimsókn á næstunni, 200kg borðstófuborð úr gegnheillri eik, internetið (það tók reyndar fleirri daga enn einn, meira að segja sunnudagsmorgun), PAX skápa frá IKEA og hluta af búslóðinni hans Jóa á bretti... og allt kom sitt hvorn daginn! Annars fengum við nú hjálp frá góðum vinum hérna í Óðinsvé þannig að þetta gekk allt vel þrátt fyrir að IKEA hérna er álíka stórt og stafirnir sem merkja það!




Mamma og pabbi komu svo í heimsókn í rúma viku í lok september. Það var voða ljúft að hafa þau hérna hjá sér. Sandra stóra systir Jóa og pabbi Jóa eru á leiðinni í byrjun nóvember, Vilborg Mjöll stóra systir mín og Hugrún María koma eftir rúma viku, Atli vinur Jóa í kringum landsleikinn og mamma Jóa í desember :D Þau öll misstu þó af innflutnings/afmælispartýinu okkar sem var núna um helgina, svaka stuð... en tja við lofum nú alveg stuði þegar þau koma ;)



P.S. Set inn myndir á næstunni úr innflutningspartýinu, myndir af hreiðrinu okkar Jóa sem og myndir frá mini-Evrópuferðinni.

Efnisorð:

9 Comments:

At október 17, 2007 1:57 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

ég hef krassað á flotta svefnsófanum. Ég mæli með því

 
At október 22, 2007 12:56 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Vá, æðislega flottar myndir :)

 
At október 22, 2007 2:42 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

JEi blogg, flottar myndir. Get vottað það að innflutningspartyið var svaka fjör:) Vonandi var gaman í ferðalaginu. Knús

 
At október 22, 2007 9:08 e.h., Blogger Sandra said...

Hæ og velkomin til baka, vonandi var gaman í ferðinni;-)
Hvar er hægt að sjá þessar myndir frá þér?
Kv. Sandra

 
At október 28, 2007 6:54 e.h., Blogger Margrét Lára said...

Takk fyrir kommentin... afsakið hvað ég er sein að kommenta til baka sjálf . Eftir að við komum heim fengum við Villu systur og Hugrúnu Maríu í heimsókn og svona ;)

Hef hugsað mér að setja svolítið af myndum hingað inn... Jói setur svo ábyggilega fleirri inn á flickr síðuna sína ;)

 
At nóvember 14, 2007 10:54 f.h., Blogger Unknown said...

Hæhó:) Hvernig er á endokrinologiu?? Við Ragnheiður erum að fara þangað í janúar :) Knúsílús :)

 
At nóvember 22, 2007 6:35 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Margrét mín.

Vona að þið hafið það gott og að allt gangi vel. Ég hlakka til að hitta þig = miss ja.


Þín Lísa M.

 
At nóvember 26, 2007 8:21 e.h., Blogger Margrét Lára said...

Hjördís: Já ú kúl, það er mjög gaman þar og lærdómsríkt :D Passaðu þig samt að reyna að fara í Team 1 eða Team 2...

Lísa Mín ;) Já, ég hlakka líka rosa til að hitta þig og litlu dömuna þína hana Sögu Liv... sem og kallinn hehe ;) Knús

 
At febrúar 12, 2008 9:29 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hmmm....
Hvar get ég fylgst með þér? Engar nýjar fréttir að koma??
Kys og Kram; Lísa M.

 

Skrifa ummæli

<< Home