27.5.07

... upphafið að góðu sumri...








Þessa mynd tók hann Jói minn af brúðhjónunum Bryndísi og Brian Davis síðustu helgi. Við skemmtum okkur konunglega í brúðkaupinu, ekta amerískt brúðkaup en þó ekki 300 manna veisla. Ég var brúðarmeyja, vaknaði árla dags fyrir að fara í hárgreiðslu og hanga með hinum skvísunum fjórum sem voru líka brúðarmeyjar. Brúðurinn var mjög svo taugatrekkt, enda mikil dama á ferð sem sjaldan sést ómáluð og illa greidd til fara. Gekk allt eins og í sögu, en ég var nokkuð þreytt eftir daginn enda heilmikið starf að vera brúðarmeyja :D Sat við háborðið um kvöldið ásamt hinum 9 sem voru í fylgdarliðinu! Foreldrar brúðhjónana sátu ekki á háborðinu, fremur spes siður. Brúðhjónin eru nú á Arruba.

Við Jói höfum líka verið á flakki... fórum til Delaware, skattlausa ríkið til að versla inn... fórum til Penn State, háskólaborgar nálægt frænku minni og frænda og gistum þar á heimavistinni í herbergi með 2 herbergisfélögum "litlu" frænku! Erum nú ein heima í 2 hæða íbúð í San Francisco og höfum lítið gert annað en að slappa af, hanga í tölvunni, góna á imbann, fara í bíó og skoða borgina. Fórum samt á tónleika í gær, vinir Jóa til 10 ára héldu þá en Jói var að hitta þá í eigin persónu í fyrsta sinn á ævinni. Vorum boðin á eitthvern svaðalegan private klúbb á tónleika í fyrrakvöld en héngum heima... þessi klúbbur heitir Supperclup og fólk situr ekki til borðs heldur liggur á beddum út um allt meðan maturinn er borinn í það! Voða mikið artífartí, naktur barþjónn og óperusöngkona sem skemmtir! En við héldum okkur bara heima við... líkt og í dag var Samba Karnival sem fólk er að koma á alls staðar úr heiminum en nei við höldum okkur heima við! Slepptum því líka að fara í Napa Valley í brúðkaup þar á víngarði... njótum þess að hafa tímann út af fyrir okkur :D Annars er mikið prógramm framundan, New York, New Jersey, skoðunarferðir og mótorhjólaferð um San Fran... Endilega kíkið á síðuna hans Jóa, www.jhaukur.blogspot.com ef þið viljið sjá meiri USA myndir ;)

Að lokum, innilega til hamingju Ragnheiður og Andri... nýgiftu hjón :D

4 Comments:

At maí 28, 2007 3:44 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gott ad sjá ad tú komst út!!

 
At júní 04, 2007 4:31 e.h., Blogger Margrét Lára said...

Jammm hehe segðu, þetta náðist allt með glæsibrag :D En mikið er ljúft að vera komin heim... og fara svo út aftur á morgun!

 
At júní 18, 2007 2:16 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Glæsilegur brúðarmeyjarkjóll en ennþá fallegri brúðarmey. Hafðu það gott skvís.

 
At júní 26, 2007 7:59 e.h., Blogger Margrét Lára said...

Takk fyrir það skvís :D Ég hlakka til að sjá þig um helgina ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home