12.2.03

Halló öll sömul aftur!

Ég var að uppgötva hvað það er nú langt síðan ég hef bloggað síðast. Ég er nú reyndar líka bara nýkomin aftur til baka eftir að hafa verið í rosalega góðu jólafríi og upplestrarfríi heima á Íslandi. Skólinn byrjaði sem sagt í síðustu viku og svona líka af fullum krafti. Þessi önn er sögð vera ansi strembinn þar sem hið svokallaða fyrsta árs próf er í lok hennar eða í júní. Ég held nú samt að hún verður alveg rosalega skemmtileg þar sem við erum eiginlega bara búin að vera í spennandi tímum það sem af er. Erum í rosalega miklu verklegu og minna í fyrirlestrum. Núna er sko hangið uppi í bútasal og lært langt fram eftir... Annars var ég í kvöld á minni fyrstu hljómsveitaræfingu með Hindsholm musikforeningen, sem er aðallega skipuð fólki sem er svona um 20-50 árum eldra en ég! Æfingarnar eru einu sinni í viku og í bæ sem liggur um 25km frá Óðinsvéum. Ég mun sem betur fer fá far þangað með fólki kemur frá Óðinsvéum og spilar í henni- úff væri nú ekki að fara að halda það út að hjóla. Svo verður nú bara gaman að umgangast eldra og lífsreyndara fólk, enda er maður nánast bara með jafnöldrum alla hina daga vikunnar. Annars hitti ég nú ábyggilega nóg af eldra fólki á FADL vöktunum, en það er nú yfirleitt þreyttara og auðvitað veikt. Ég tók einmitt mínar fyrstu tvær vaktir seinustu helgi og þær gengu nokkuð stórslysalaust fyrir sig. Gat meira segja lesið námsbækurnar.

Ohh, núna er ég bara byrjuð að geispa endalaust svo ég segi góða nótt.